HomeUm fyrirtækið

IÐNVÉLAR ehf

IÐNVÉLAR ehf er einn stærsta söluaðilinn í nýjum vélum og tækjum fyrir íslenskan framleiðsluiðnað..

IÐNVÉLAR hafa verið í fararbroddi í að kynna íslenskum iðnaði nýjungar í vélum og verkfærum.
Fyrstu árin var lögð öll áhersla á trésmíðavélar og náði fyrirtækið leiðandi markaðsstöðu sem hefur haldist þrátt fyrir harðnandi samkeppni frá erlendum og innlendum aðilum. Miklar sveiflur í hagkerfinu sem komu mjög sterklega fram í byggingariðnaði gerði að verkum að fyrirtækið bætti við sig vélum fyrir járnsmíðaiðnað upp úr 1980.

Starfsemi IÐNVÉLA skiptist í fimm aðalflokka:

TRÉSMÍÐAVÉLAR - Sala og þjónusta á vélum og tækjum fyrir trésmíða-og byggingaiðnað.
JÁRNSMÍÐAVÉLAR - Sala og þjónusta á vélum og tækjum fyrir járnsmíðaiðnað.
ÞRÝSTILOFT - Sala og þjónusta á loftpressum og búnaði fyrir þrýstiloft.
SOGKERFI og rykhreinsibúnaður fyrir iðnfyrirtæki.

VIÐHALD OG ÞJÓNUSTA - Alhliða viðhald og þjónusta á tækjabúnaði viðskiptavina okkar.

Í dag eru IÐNVÉLAR leiðandi í sölu á vélum og tækjum til tré-og járnsmíðaiðnaðar og á síðustu árum hafa bæst við traustir viðskiptavinir í lyfja-matvæla og fiskiðnaði.
Þekking og reynsla hefur gert okkur kleyft að aðstoða viðskiptavini okkar með smá sem stór verkefni, stakar vélar eða heildar "lykillausnir"

IÐNVÉLAR hafa ávallt lagt áherslu á þekkingu og hæft starfsfólk og lagt með því grunninn að traustu samstarfi við íslenskan iðnað.

Framtíðarsýn IÐNVÉLA liggur í þekkingu, ábyrgri afstöðu til verkefna og traustu samstarfi við viðskiptavini okkar.