IÐNVÉLAR ehf er einn stærsti söluaðilinn í nýjum vélum og tækjum fyrir íslenskan framleiðsluiðnað

Föstudagur, 06 Ágúst 2010 09:00

HAAS CNC Nýjar vélar - lægri verð

servobarHAAS Fræsivélarnar eru mest seldu fræsivélar í Evrópu og USA. Nýja línan sem kom á markaðinn í lok síðasta árs er með stöðluðum búnaði sem fæst yfirleitt ekki nema í mun dýrari vélum. Öflugri og fljótari tölva, aukinn staðalbúnaður sem þýðir lægra verð.

Nýja fræsivélin: smellið hér: VMC2010

HAAS 4 og 5 ása borðin eru hrein snilld.
Smellið hér og skoðið úrvalið. Við komum og setjum hugbúnað í hvaða vél sem er og setjum upp deiliborð fyrir þig.

Þú getur skoðað verðin á netinu. Þar koma fram svart á hvítu grunnverðin og síðan getur þú raðað inn aukahlutum. (ath. í sumum tilfellum eru EU útfærslur ekki að fulli inn í verði) Hafið samband og við sendum í tölvupósti.

HAASCNC hefur fest sig í sessi sem einn framsæknasti framleiðandinn á CNC spóntökuvélum.

2009 sýndi styrk HAASCNC véla á markaðnum þar sem HAAS var eitt af fáum fyrirtækjum til að auka markaðshlutdeild sína á Evrópu markaðnum, á sama tíma og heildarsamdráttur var á markaðnum.

Nýjar gerðir af TL rennibekkjunum eru komnar á markaðinn- TL-2 - TL-3 og TL-4 með 300 mm gegnumborun.

Nýja TM - 1P  fræsivélin er  með verkfæraskipti fyrir 10 verkfæri. Í TM-1P færðu sömu stýringuna og í stóru vélunum með 5 ásum. HAAS stýringin er standard með möguleikum fyrir 3-5 ása vinnslu. Les DXF skrár - AutoCad - ESPRIT - Inventor og ALFACAM.

TL- línan í CNC rennibekkjum er með mest seldu 2ja ása vélunum í heiminum í dag. TM- línan í fræsivélum hefur slegið í gegn á sama hátt og er nú til afgeiðslu með verkfæraskipti á frábæru verði.

Ný lína í rennibekkjunum: ST 20 og ST 30. 320-530 mm þvermál - allt að 660 mm milli odda. Mjög öflugir bekkir með möguleika á verkfæraskipti með lifandi verkfærum, vökvapatrónu, vökvabrillu og vökvapatrónu. C og Y ásar.

HAAS AUTOMATION er einn stærsti og öflugasti framleiðandi á spóntökuvélum - rennibekkjum og fræsivélum í heiminum í dag. Á Íslandi eru  vélar í gangi  frá 2 og upp í 5 ása vinnslu.

Haascnc.com