IÐNVÉLAR ehf er einn stærsti söluaðilinn í nýjum vélum og tækjum fyrir íslenskan framleiðsluiðnað

Fimmtudagur, 05 Ágúst 2010 22:58

SCM L'Invincibile línan

Bestu trésmíðavélarnar á markaðnum

Árið 1957 sló SCM eftirminnilega í gegn á markaðnum með nýrri línu af trésmíðavélum - L´invincibile - Hinn Ósigrandi - og hóf með því göngu sína sem leiðandi merki á trésmíðamarkaðnum. Nú, 50 árum
síðar, löngu eftir að SCMGROUP hefur tryggt stöðu sína sem stærsti og framsæknasti framleiðandi á trésmíðavélum í heiminum, kemur aftur L´invincibile línan sem það besta sem hægt er að fá í trésmíðavélum. Hönnun og gæði sem lögð eru í þessar vélar á sér engan samanburð. Til að fá að selja þessar vélar verða þjónustuaðilar að fara á sérstök námskeið og uppfylla ákveðin gæðaskilyrði. Okkur er ánægja að segja frá því að IÐNVÉLAR voru einn af fyrstu aðilunum til að vera samþykktir sem sölu og þjónustu aðilar að L´invincibile línunni. Hér hefur SCM enn einu sinni tekið skref sem sýnir yfirburða forystu á trésmíðavélamarkaðnum og gerir bilið á milli SCM GROUP og annarra framleiðenda enn stærra. Við hönnun þessara véla voru gæði og tillit til umhverfisins í fyrsta sæti. Árangurinn varð frábærar vélar með einstökum vinnuþægindum fyrir stjórnanda vélanna. L´invincibile línan er einfaldlega það besta sem er á markaðnum í dag.